Endurkröfuvefur
Ef það kemur færsla á kortið þitt sem þú telur af einhverjum ástæðum ekki eiga rétt á sér getur þú mögulega átt rétt á endurkröfu samkvæmt endurkröfureglum kortasamtaka.
Ef þú áttir enga aðild að færslunni getur þú látið reyna á endurkröfu. Í slíkum tilvikum þarf að loka kortinu varanlega.
Ef þú hefur athugasemd við færslu sem þú tókst þátt í þarft þú fyrst að snúa þér til söluaðila til að fá leiðréttingu. Ef þér tekst ekki að leysa málið með söluaðila getur þú mögulega átt rétt á endurkröfu samkvæmt endurkröfureglum kortasamtaka.
Til þess að láta reyna á endurkröfu þarft þú að:
- Skrá þig inn með rafrænum skilríkjum
- Velja færslu sem þú vilt gera athugasemd við og rökstyðja endurkröfubeiðnina
- Setja inn viðeigandi gögn sem spurt verður um í ferlinu
- Staðfesta innsendingu
Hafir þú einhverjar spurningar um endurkröfuferlið skaltu hafa samband við þjónustufulltrúa bankans.